Hálfólympísk þríþraut á vegum 3SH, Newline þríþrautin 2014 fer fram fyrsta júní næstkomandi. Keppt verður í og við Ásvallalaugina í Hafnarfirði. Keppendur synda 750m, hjóla 20 km og hlaupa 5 km. Keppt verður í tveimur aldursflokkum, 18-39 ára og 40plús auk þess sem keppt er í karla og kvennaflokki. Þá er einnig boðið upp á byrjendaflokk.
Glæsileg verðaun fyrir efstu sæti eru í boði Intersport auk þess útdráttarverðlauna. Þátttökugjald er 3.500 kr. og renna 1.000 kr. til söfnunarfyrir fórnarlömb flóðanna á Balkanskaganum. Skráningar fer fram á heimasíðu 3SH og lokar hún þann 29. maí kl. 14. Nánari upplýsingar má fá á heimasíðu 3SH.