904 lesendur tóku þátt í könnuninni að þessu sinni og eru lesendur hvattir til að taka þátt í nýrri könnun þar sem spurt er "Í hversu mörgum almenningshlaupum hefur þú tekið þátt á árinu?"
birt 29. júní 2014
Í síðustu könnun á forsíðu hlaup.is voru lesendur spurðir hve marga kílómetra þeir hafi hlaupið í síðustu viku. Atkvæði röðuðst nokkuð jafnt að þessu sinni en þó hlaupa flestir lesendur hlaup.is 20-40 km í viku hverri eða 28%. Skammt á eftir komu þeir sem hlupu 10-20 km á viku en þeir fylltu 24%. Margir láta sér nægja að hlaupa 0-10 km eða 22% lesenda.En innan raða lesenda hlaup.is er þó fjölmennur hópur sem hleypur meira en 40 km á viku. 13% lesenda hlaupa 40-60 km á viku. Einkar athyglisvert er að sjá að tiltölulega stór hópur lesenda hleypur lengra en 60 km á viku eða 13%.Eins og fyrri kannanir hafa leitt í ljós er lesendahópur hlaup.is langt í frá einsleitur hópur, heldur finnast þar hinar ýmsu tegundir hlaupara með hin ólíkustu markmið. En öll eigum við þó sameiginlega að hafa gaman af hlaupum og já að sjálfsögðu að lesa hlaup.is.