Ný hlaupasería í vetur á vegum Framfara og New Balance

birt 19. september 2004

Á vegum Framfara og New Balance hefur nú verið skipulögð Víðavangshlauparöð í haust. Nafnið á þessari hlaupaseríu er "Víðavangshlauparöð Framfara og New Balance 2004". Skipulag og framkvæmd verður eftirfarandi:

Tímasetningar
Hlaupin verða haldin milli 14 og 15 eftirtalda laugardaga í haust:

  • 2. október
  • 23. október
  • 30. október
  • 13. nóvember

Staðsetning 
Tún við Borgarspítalann, Fossvogi.  Hægt verður að hlaupa á gaddaskóm.  Um tæplega 1 km hringi verður að ræða svo auðvelt verður fyrir áhorfendur að fylgjast með hlaupinu.

Flokkaskipting
  Karlar
  Konur

Keppnisvegalengdir
  Karlar: ca. 4km
  Konur: ca. 3km

Verðlaun
Veitt verða heildarverðlaun í sveitakeppni að loknu síðasta hlaupinu.  Stigagjöf er á þá leið að sigurvegari hvers hlaups fær 10 stig, annar maður fær 9 stig og koll af kolli niður í 1 stig fyrir 10. sætið.  Hvert félag/skokkhópur má senda ótakmarkaðan fjölda hlaupara í hvert hlaup en aðeins þeir 4 fyrstu telja í hverju hlaupi fyrir sig.  Að loknu síðasta hlaupi er lagður saman heildarstigafjöldi hvers liðs og sigurvegari í sveitakeppninni verður það lið sem flest stig hlýtur.  Þrjú efstu liðin fá verðlaun í bæði kvenna- og karlaflokki.
Þrír efstu einstaklingar skv. fyrrgreindu stigakerfi beggja kynja fá einnig glæsileg verðlaun frá Afreksvörum, umboðsaðila New Balance á Íslandi, að loknu síðasta hlaupinu.

Þátttökugjald
500 kr á mann fyrir hvert hlaup greiðist á staðnum fyrir hlaup.

Nánari upplýsingar gefa Björn Margeirsson (bjornm@almenna.is og s:663 1745) og Burkni Helgason (burkni@agr.is og s: 820 1052).