Flugleiðahlaupið (FL Group hlaupið) verður að þessu sinni haldið á uppstigningardag 5. maí kl. 11:00, en ekki kl. 19:00 eins og venjan hefur verið. Skráning á staðnum frá kl.9:00 og á hlaup.is til kl. 22 kvöldið fyrir hlaup. Smábreyting verður á hlaupaleiðinni vegna framkvæmda á svæðinu en eftir sem áður verður hlaupið í kringum Reykjavíkurflugvöll. Aðalbreytingin er sú að hlaupið verður eftir Hringbraut í stað Vatnsmýrarvegar auk þess sem ekki er hlaupin lykkja á hringtorgi við Þorragötu.
Sjá nánari upplýsingar í hlaupadagskránni.