Á aðalfundi Félags 100 km hlaupara á íslandi þann 7. desember, 2017 og aukafundi 9. desember, 2017 voru fimm nýir félagar teknir inn í félagið með formlegum hætti, Arnfríður Kjartansdóttir (félagsmaður nr. 48), Þorbergur Ingi Jónsson (64), Jósep Magnússon (72), Lingþór Jósepsson (73) og Eva Ólafsdóttir (74).
Þar með er fjöldi félagsmanna orðinn 71, þar af 15 konur (21%) og 56 karlar (79%) Sjá félagatal. Auk þeirra hafa þrír öðlast rétt til inngöngu í félagið, ein kona og tveir karlar Sjá á síðu Félags 100 km hlaupara.
Um Félag 100 km hlaupara á Íslandi
- Félagið var stofnað 26. september, 2004 í Sundlaug Vesturbæjar að loknu Þingstaðahlaupi.
- Tilgangur félagsins er að efla samstöðu meðal langhlaupara á Íslandi sem fást við ofurmaraþon í "flokki lengri vegalengda", þ.e. 100 km og lengra sem og að stuðla að vaxandi þátttöku í slíkum hlaupum.
- Gildir meðlimir í félaginu eru allir þeir Íslendingar sem lokið hafa þátttöku í viðurkenndu, opinberu 100 km keppnishlaupi, eða lengra hlaupi, þar sem hlaupið er í einum áfanga.
Af aðalfundi (7.12. í Reykjavík; frá vinstri: Sigurður Gunnsteinsson (2), Stefán Bragi Bjarnason (53), Lingþór Jósepsson(73), Jósep Magnússon(72), Viggó Ingason(68), Höskuldur Kristvinsson(7), Eva Ólafsdóttir(74), Christine Buchholz(30), Elísabet Margeirsdóttir(47); á myndina vantar ljósmyndarann, Ágúst Kvaran(1).Af aðalfundi (7.12. í Reykjavík; frá vinstri: Sigurður Gunnsteinsson (2), Eva Ólafsdóttir(74), Jósep Magnússon(72), Lingþór Jósepsson(73) og Ágúst Kvaran(1).Af aukafundi (9.12. á Akureyri, frá vinstri: Arnfríður Kjartansdóttir(48), Stefán Bragi Bjarnason (53) og Þorbergur Ingi Jónsson (64).