Pétur Frantzson, sem um árabil hefur þjálfað hlaupara meðal annars hjá Námsflokkunum, Laugaskokki og á Selfossi, er að fara af stað með tilraun til að efla skokkáhuga á landinu í samvinnu við Adidas.
Pétur mun fara á flesta staði á landinu og reyna að fá fólk til að mynda skokkhópa, hittast reglulega og setja sér markmið. Meiningin er að byrja 1. mai á Höfn í Hornafirði og halda svo áfram austur.
Allar upplýsingar um dagsetningar, staði og tíma verða birtar hér á hlaup.is og einnig mun Pétur birta allar aðrar upplýsingar tengdu þessu verkefni á hlaup.is.