Ákveðið hefur verið að búa til nýjan flokk "Ársbesta" á hlaup.is sem heldur utan um bestu tíma í hlaupagreinum á árinu. Það eru nokkrir valinkunnir hlauparar sem sjá um að viðhalda réttum upplýsingum, þeit Sigurður P. Sigmundsson, Gunnar Páll Jóakimsson en þessa tvo þekkja menn líklega út af ráðgjöf þeirra í gengum hlaup.is. Einnig munu Burkni Helgason og Ólafur Margeirsson sjá um að viðhalda réttum upplýsingum.
Á næstunni mun síðan bætast við dálkur, sem mun kallast Umfjöllun (um hlaup) og verða nokkrir hlauparar fengnir til að tjá sig um hin ýmsu hlaup sem í gangi eru.
Til að byrja með eru tímar frá 5 km, 10 km og maraþoni inni á hlaup.is, en hitt kemur mjög fljótlega.
Ákveðið var að gera þessum flokk hátt undir höfði til að byrja með og fær hann því sess á aðalvalmyndastiku hlaup.is.