Þann 3. október síðastliðinn var Hlaupahópur Stjörnunnar stofnaður. Á stofnfundinn mættu 30 manns og í kjölfarið var haldinn fræðslufundur, en á hann mættu yfir 80 manns.
Fyrstu hlaupaæfingar hófust fimmtudaginn 12. október undir leiðsögn Sigurðar P. Sigmundssonar, sem mun stýra hópnum fyrst um sinn.
Æfingatímar eru sem hér segir:
- Mánudaga kl. 17:30
- Þriðjudaga kl. 17:30
- Fimmtudaga kl. 17:30
- Laugardaga kl. 9:30
Heimasíða hópsins er: http://stjarnanhlaup.wordpress.com/