Fríða Rún Þórðardóttir hefur gengið til liðs við hlaup.is og mun bæði svara spurningum um mataræði, næringarfræði og ýmislegt annað sem tengist þjálfum og hlaupum. Fríða Rún er með masters gráðu í næringarfræði frá University of Georgia og hefur langan starfsferil tengdan faginu og er einnig landsliðskona í hlaupum.
Hún hefur því mikla reynslu sem næringarfræðingur og hlaupari og mun svara fyrirspurnum og skrifa greinar um þessi mál hér á hlaup.is.
Hlaup.is býður Fríðu Rún velkomna og hvetur hlaupara til að nýta sér þekkingu hennar.
Skoðið fyrstu greinu Fríðu Rún hér á hlaup.is um undirbúning síðustu vikuna fyrir hlaup.