Þann 1. júlí tók Stoð hf. við rekstri vefverslunar hlaup.is. Vefverslunin verður áfram rekin á hlaup.is en Stoð mun sjá um innkaup og afgreiðslu á öllum vörum sem pantaðar eru í gegnum vefverslunina. Allar sendingar eru því sendar frá Stoð og einnig munu þeir svara fyrirspurnum um pantanir og fleira. Síminn hjá Stoð er 565-2885.
Stoð mun á næstunni einnig selja í verslun sinni Trönuhrauni 8, sömu hlaupavörur og eru í vefversluninni.
Eins og áður skiptir það miklu máli fyrir hlaup.is vefinn að hlauparar versli í vefversluninni og einnig í verslun Stoðar á Trönuhrauni 8 í Hafnarfirði, þegar þeirri uppsetningu verður lokið, því það skilar inn tekjum svo hægt sé að reka hlaup.is.