birt 06. apríl 2008

Kári Steinn Karlsson úr Breiðabliki setti Íslandsmet í 10 km hlaupi á móti hjá Stanford háskólanum í Kaliforníu í gær. Kári hljóp á 29:28,05 mínútum og bætti þar með þrjátíu og tveggja ára gamalt Íslandsmet ÍR-ingsins Sigfúsar Jónssonar. Met Sigfúsar var 30:10,0 mín en Kári bætti sinn besta árangur um rétt rúma mínútu.

Frétt af fri.is og mbl.is.