Nýtt námskeið fyrir hlaupara - Hlaupaleikfimi

birt 19. ágúst 2012

Sjúkraþjálfun Reykjavíkur hefur boðið upp á mjólkursýrumælingar og kraftmælingar fyrir langhlaupara undanfarin ár til að þeir geti fylgst með líkamsástandi sínu og gert áætlanir um þjálfun sína. Mælingar þessar eru ein af forsendum þess að hlauparar viti hvar þeir standa og einnig mikilvæg leið til að koma í veg fyrir meiðsli sem hrjá marga hlaupara.

Einnig hafa sjúkraþjálfarar Sjúkraþjálfunar Reykjavíkur meðhöndlað hundruði langhlaupara sem hafa lent í álagsmeiðslum, ofþjálfun og áverkum tengda hlaupaþjálfun.

Hlaupaleikfimi
Í vetur ætlar Sjúkraþjálfun Reykjavíkur að bjóða upp á nýja valkosti, meðal annars hlaupaleikfimi sem er sérhæfð leikfimi fyrir langhlaupara sem hefur verið þróuð af Gauta Grétarssyni sjúkraþjálfara.

Leikfimin eykur líkamsstyrk hlaupara, bætir hlaupalag og er ein leið til að koma í veg fyrir álagsmeiðsli og er því ein leið til að bæta hlaupatíma.

Leikfimin hefst 5. september næst komandi og er 1 x í viku á miðvikudögum kl. 7.30.

Innifalið í námskeiðinu er mjólkursýrumæling, kraftmæling, fyrirlestrar og leiðbeiningar um þjálfun langhlaupara.

Þeir sem sjá um námskeiðið ásamt Gauta eru Hildigunnur Hilmarsdóttir íþróttakennari sem er sérfræðingur í mjólkursýrumælingum og mati á líkamlegri afkastagetu og Gunnar Svanbergsson sjúkraþjálfari sem er sérfræðingur í líkamsgreiningu langhlaupara.

Líkamsgreiningar
Einnig mun SR bjóða upp á líkamsgreiningar fyrir langhlaupara, en með líkamsgreiningunni sem gerð er með háhraðamyndavél, má sjá veikleika í hlaupatækni og stoðkerfi auk þess sem finna má leiðir til að bæta hlaupatækni.

Kine mælingar
Kine mælingar eru gerðar með vöðvanemum, en þar er hægt að sjá hvort hlauparar séu að nota stærstu og mikilvægustu vöðvahópa líkamans í hlaupunum.

Tækni þessi er víða þekkt en hefur verið þróuð hér á landi af sprotafyrirtækinu Kine.

Verð á 12 vikna hlaupanámskeiði ásamt mælingum er 25.000 krónur. Skráning fer fram í síma 5621916, 6615761 eða á gauti@srg.is