Hlaupahaldarar fyrir vestan hafa hug á að halda stóra hlaupahelgi dagana 17.-19. júlí og hafa bæði Óshlíðarhlaupið og Vesturgötuna á dagskránni!
Óshlíðarhlaupið fer fram föstudagskvöldið 17. júlí. Á laugardeginum er síðan ætlunin að vera með hlaupatengda dagskrá (fyrirlestra, myndasýningar eða eitthvað í þeim dúr) og halda svo Vesturgötuhlaupið sunnudaginn 19. júlí. Þeir stórtækustu geta þá hlaupið lengstu vegalengd í báðum hlaupum, aðrir valið styttri vegalengdir eða bara annað hlaupið.
Vestfirðingar eru að vonast eftir því að það geti myndast skemmtileg stemmning í kringum hátíðina og ætla því að prófa og sjá hver aðsóknin verður.
Upplýsingamiðstöð Vestfjarða (info@vestfirdir.is)