Opinn fyrirlestur verður haldinn í Íþróttaakademíunni, Reykjanesbæ, þriðjudaginn 13. janúar klukkan 20.00.
Flestir skjólstæðingar einkaþjálfara hafa það að markmiði að minnka fituhlutfall sitt.
Skiptar skoðanir eru á því hvaða aðferð sé best til að brenna sem mestri fitu á sem skemmstum tíma en undanfarin ár eða áratugi hefur langhlaup eða þjálfun við lítið og miðlungs álag (fitubrennslupúls) verið vinsælasta leiðin.
En er þessi aðferð að skila þeim árangri sem sótt er eftir eða er til einhver undra fitubrennsluleið?
Efni
Á fyrirlestrinum verður fjallað um áhrifaþætti á fitubrennslu út frá niðurstöðum fjölmargra rannsókna. Bornar verða saman aðferðir eins og langhlaup, hraðabreytileg hlaup (interval) og lyftingar. Þá verður fjallað um hvað þurfi að hafa í huga við uppsetningu á æfingagerfi sem á að skila sem mestri fitubrennslu.
Fyrirlesari
Helgi Jónas Guðfinnsson, kennari við ÍAK einkaþjálfaranám.
Fyrir hverja
Fyrirlesturinn er sérstaklega ætlaður einkaþjálfurum, íþróttafræðingum og öðrum sem veita ráðleggingar um líkamsrækt.
Þá er öllum áhugasömum um líkamsrækt einnig velkomið að koma.
Verð
Fyrirlesturinn er í boði ÍAK einkaþjálfaranáms Keilis.
Staðsetning
Íþróttaakademíunni í Reykjanesbæ. Beint á móti Reykjaneshöllinni.
Skráning
Vinsamlegast tilkynnið komu ykkar með því að senda svar á þennan póst (gunnhildur@keilir.net).