Vegna sumarfría, verða pantanir ekki afgreiddar í eina viku milli fimmtudagsins 5. júní og fimmtudagsins 12. júní. Verslunin verður opin og þeir sem hafa biðlund geta gengið frá pöntunum sem afgreiddar verða 13. júní og berast þeim mánudaginn 16. júní.
Þetta þýðir að allar pantanir sem berast fyrir miðvikudaginn 4. júní kl. 18:00 verða sendar út á venjulegan hátt og berast til kaupenda á föstudaginn 6. júní en pantanir sem berast eftir kl. 18:00 miðvikudagskvöldið 4. júní og fram til fimmtudags 12. júní, verða sendar út föstudaginn 13. júní.
Hægt verður að afgreiða pantanir á þessu tímabili ef mikið liggur við. Hafið þá samband í síma 845-1600. Einnig verður hægt að sækja pantanir fram á miðvikudagskvöldið, ef þess er óskað.
Kveðja, Torfi