JCI Esja verður með nýjan viðburð í Reykjavík þann 24. júlí milli kl. 13 og 16. Rat Race, eða hlaup skrifstofumannsins, er nokkurs konar þrautahlaup sem allir geta tekið þátt í.
Rat Race mun fara fram við tjörnina við Ráðhús Reykjavíkurborgar minni hringurinn. Fólk getur myndað lið og verður hvert lið að borga 2.000 kr. til að taka þátt, en einstaklingar borga 1.000 kr.
Hlaupið er svona:
1. Tvö lið keppa í einu en tveir í hverju liði keppa hverju sinni
2. Það verða 5 stöðvar með léttum skrifstofuþrautum
3. Verðlaun eru veitt fyrir fyrstu 3 sætin.
Við skráningum taka Kristín kg7553@gmail.com og Lilja liljak17@hotmail.com til 22. júlí. Vegleg verðlaun eru í boði fyrir fyrstu 3 sætin.
JCI Esja býður svo fólki upp á grillveislu eftir hlaupið.