Rathlaup (orienteering) í Elliðárdalnum laugardaginn 14. nóvember

birt 12. nóvember 2009

Rathlaup (orienteering) Elliðárdalnum laugardaginn 14. nóvember kl 12:00 og getur fólk mætt til kl 14:00. Ræst er frá félagsheimili starfmanna Orkuveitunnar við Rafstöðuveg 20.

Boðið verður upp á erfiða og langa braut og einnig upp á stutta og einfalda braut. Þannig ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi, bæði börn og fullorðnir. Við hvetjum alla til kynna sér rathlaup sem nýjung hér á landi en er vinsæl keppnisgrein erlendis.

Rathlaupsfélagið