René hyggst ljúka ferðinni á morgun

birt 08. júlí 2014

René hefur háð harða baráttu við náttúruöflin.Íslandsvinurinn René Kujan er nú óðum að vinna upp þær tafir sem hann varð fyrir um helgina vegna óveðurs. René áætlar að ljúka ferð sinni þvert yfir landið á morgun. René áætlar hefja síðasta legginn á vegamótum vegs 62 og 614 (Rauðasandsvegur) og halda þaðan áleiðis að Bjargtöngum þar sem ferðinni lýkur.Undanfarna daga hefur René verið að hlaupa 40-60 km á sólarhring og í dag þriðjudag var enginn undantekning. René hljóp frá Flókalundi í morgun þar sem hann gisti ásamt sjónvarpsmönnum frá tékkneska sjónvarpinu sem komu til landsins til að fylgja honum síðustu dagana.Í kvöld er ætlunin að hafa næturstað á Rauðasandi þar sem René ásamt tékkneska fylgdarliðinu mun gista í tjaldi. Rétt er að geta þess fyrir áhugasama að á morgun verður líklega hlaupið yfir Breiðdalsheiði (veg 612).

Eins og komið hefur fram hleypur René til styrktar Íþróttasambandi fatlaðra og Hollvinum Grensáss. Hægt er að sýna stuðning í verki með því að hringja í eftirtalin símanúmer:

9087997 - 1.000kr.
9087990 - 2.000kr.  
9087999 - 5.000kr.

Einnig má fylgjast nánar með ferðum René á fésbókarsíðu Komaso.

Viðtal hlaup.is við René sem var tekið áður en hann lagði af stað.

Þrátt fyrir slæmt veður á köflum hefur íslensk náttúra skartað sínu fegursta.inná milli fyrir Íslandsvininn René.