René lauk ferðinni í gær - Rúmir 900 km síðan 15. júní

birt 10. júlí 2014

René veifar íslenska fánanum eftir að hafa lokið ferðinni við Látrabjarg.Tékkneski ofurhlauparinn og Íslandsvinurinn, René Kujan lauk hlaupaferð sinni þvert yfir landið í gær. Hann lauk ferðinni við Bjargtanga við Látrabjarg og var vegalengdin frá austasta tanga landsins að hinum vestasta yfir 900 km.Þess má geta að René hljóp meira en maraþon á dag frá þvi hann lagði af stað þann 15. júní.

Ekki nóg með að hafa hlaupið alla þessa vegalengd heldur ýtti René kerru með vistum og öðrum útbúnaði á undan sér. Þá fór íslenska veðrið ekkert alltof mjúkum höndum um Tékkann sem varð til þess að honum var "bannað" að hlaupa einn daginn. Þá gisti hann í tjaldi á milli þess sem gisthúsaeigendur skutu yfir hann skjólshúsi.

René sem hefur margoft áður komið til landsins og m.a. hlaupið hringinn, mun á laugardaginn ekki láta sér muna um að taka þátt í Laugavegshlaupinu. Enda er það eins og léttur sunnudagsbíltúr miðað við það það sem hann hefur lagt að baki undanfarnar vikur.

Eins og komið hefur fram hleypur René til styrktar Íþróttasambandi fatlaðra og Hollvinum Grensáss. Hægt er að sýna stuðning í verki með því að hringja í eftirtalin símanúmer:

9087997 - 1.000kr.
9087990 - 2.000kr.  
9087999 - 5.000kr.

Einnig má fylgjast nánar með ferðum René á fésbókarsíðu Komaso.

Viðtal hlaup.is við René sem var tekið áður en hann lagði af stað.