Reykjavíkurmaraþon: Hafa safnað 10% meira en í fyrra

birt 29. júlí 2014

Áheitasöfnun Reykjavíkurmaraþons Íslandsbanka sem fram fer laugardaginn 23.ágúst 2014 fer fram á vefnum hlaupastyrkur.is. Í dag, þriðjudag, eru 25 dagar í hlaupið og þegar hafa safnast tæplega 11,4 milljónir til hinna ýmsu verðugu málefna. Rétt er að geta þess að upphæðin er 10% hærri en sú upphæð sem búið var að safna á sama tíma í fyrra.

Áheitavefurinn hlaupastyrkur.is var opnaður sumarið 2010. Á hverju ári síðan þá hefur verið slegið met í áheitasöfnun í tengslum við hlaupið enda vefurinn bæði einfaldur og myndrænn. Í fyrra söfnuðu hlauparar í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka 72,5 milljónum til góðra málefna og var það 58% hækkun á áheitum milli ára.

Allir skráðir þátttakendur í Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka 2014 geta skráð sig sem góðgerðahlaupara á hlaupastyrkur.is í nokkrum einföldum skrefum. Hægt er að velja á milli rúmlega 150 góðgerðafélaga til að hlaupa fyrir og því ættu allir að geta fundið málefni sem stendur hjarta þeirra næst.

Skráning góðgerðafélaga fer fram í gegnum netfangið aheit@marathon.is. Hægt er að skrá góðgerðafélög til þátttöku fram til miðvikudagsins 6.ágúst 2014.

Skráning í Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka fer fram á vefnum: http://marathon.is/reykjavikurmaraton

Áheitasöfnun Reykjavíkurmaraþons Íslandsbanka fer fram á vefnum: http://www.hlaupastyrkur.is/