Afmælisleikur hlaup.is er í fullum gangi og af því tilefni rifjum við upp gamla og nýja tíma í íslenska hlaupasamfélaginu. Að þessu sinni tókum við saman nokkra gamla boli úr almenningshlaupum. Heyrst hefur að gamlir bolir úr íslenskum almenningshlaupum heilli dómarar í afmælisleiknum. Því hvetjum við lesendur hlaup.is til að róta í fataskápunum og finna gamla hlaupabolinn, skella sér í hann og smella af mynd og senda á heimir@hlaup.is.
birt 18. ágúst 2016