Rúta á vegum Kynnisferða býður uppá ferðir yfir Krossá í tengslum við Laugavegshlaupið. Rútan fer frá afleggjaranum í Húsadal laugardaginn 18. júli kl. 12:00, 12:30, 13:00 og 13:30. Að hlaupi loknu fer rútan til baka kl. 17:30, 18:00 og 20:40. Gjaldið er 1.000 kr. fyrir ferð en frítt fyrir 11 ára og yngri (fædd 2003) og 12-15 ára fá 50% afslátt. Ekki þarf að bóka í þessar ferðir fyrirfram og er gjaldið greitt á staðnum.
birt 15. júlí 2015