Kvikmyndagerðamaðurinn Sanjay Rawal vinnur nú að heimildarmynd sem nefnist "3100: Run and Become" sem fjallar um nokkrar af elstu hlaupahefðum mannkyns ásamt lengsta götuhlaupi heims, 3100 mílna hlaupinu í New York.´
Hér að neðan má sjá stiklu úr myndinni.
Í myndinni er meðal annars fylgst með búskmönnum í Afríku, maraþonmunkum í Japan og Navajo indíánum í Bandaríkjunum.
Myndin veltir fyrir sér hvernig hlaup, sérstaklega ofurvegalengdahlaup, geta verið og hafa verið um árþúsundin - tæki til að öðlast andlega reynslu og til þess að færa út mörk þess sem áður var talið mannlega mögulegt.
Tökum er lokið og nú er aðeins eftirvinnslan eftir. Sanjay leitar nú eftir stuðningi hlaupara um allan heim til þess að klára myndina. Verkefnið hefur verið sett upp á hópfjármögnunarsíðuna Kickstarter og hér má sjá mjög áhugaverða stiklu úr myndinni: https://www.kickstarter.com/projects/1424051377/new-film-on-ultra-running-and-the-worlds-longest-r
Þetta er tækifæri til að styðja við áhugaverð mynd verði að veruleika! Sérhvert framlag telur.