Saga Capital Fjárfestingarbanki hefur ákveðið að styrkja Jökulsárhlaup, víðavangshlaup um eitt fallegasta svæði landsins og hvetja þannig til íþróttaiðkunar og útivistar ásamt því að kynna þjóðgarðinn í Jökulsárgljúfrum.
Jökulsárhlaup verður haldið í fimmta sinn, 26. júlí næstkomandi og er með vinsælustu víðavangshlaupum landsins. Ástæðan er einföld, hlaupið er um stórbrotið landslag Þjóðgarðsins í Jökulsárgljúfrum með útsýni sem á sér ekki hliðstæðu í fegurð og fjölbreytileika. Leiðin liggur um margar af helstu náttúruperlum landsins, Dettifoss, Hólmatungur, Hljóðakletta og Ásbyrgi og fjölbreytileiki landslagsins, náttúrunnar og jarðfræðinnar er hreint ótrúlegur. Allt frá hrikalegum gljúfrum, hvítfyssandi fossum, steinrunnum tröllum og stuðlabergshöllum að ilmandi lyngbrekkum, birkiskógum, skoppandi smálækjum og lygnum tjörnum.
Hlauparar geta valið um þrjár vegalengdir. Dettifoss-Ásbyrgi, 32,7 km; Hólmatungur-Ásbyrgi, 21,2 km og Vesturdalur-Ásbyrgi, 13.2 km. Sjá nánar um tilhögun hlaupsins á heimasíðunni og auglýsingu fyrir hlaupið.
Skráning stendur yfir og eru hlauparar hvattir til að skrá sig snemma. Nýlega bættist við nýr liðsauki við hlaupið en fyrirtækið 66° hefur ákveðið að gefa sigurvegurum í Dettifosshlaupinu, Dettifoss-Ásbyrgi, glæsileg verðlaun sem eru hlaupabolur eða hlaupabuxur úr nýjustu hlaupalínunni þeirra Gretti.
Saga Capital er alþjóðlegur fjárfestingarbanki sem veitir þjónustu á sviði fyrirtækjaráðgjafar, verðbréfamiðlunar og útlána til fyrirtækja og fagfjárfesta. Höfuðstöðvar Saga Capital eru á Akureyri en bankinn er einnig með skrifstofur í Reykjavík.
Nánari upplýsingar veita:
Katrín Eymundsdóttir hjá Jökulsárhlaupi í síma: 898 7890
Brynhildur Ólafsdóttir hjá Saga Capital í síma: 856 2607
Frá undirritun samnings: Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, forstjóri Saga Capital (t.h.), og Katrín Eymundsdóttir, Jökulsárhlaupi, (t.v.) skrifa undir styrktarsamninginn.