Dagana 29.3. - 4.4.2009 fer fram 24. eyðimerkurmaraþonið í Marokko („Marathon des Sables"). Meðal þátttakenda er Ágúst Kvaran (rásnúmer 177), sem er gamalreyndur í langhlaupum og á að baki nokkur 100 km hlaup og Justin Bjarnason (rásnumer 271), sem er af íslensku bergi brotinn, búsettur í Englandi.
Sahara eyðimerkurmaraþonið er áfangahlaup þar sem hlaupið er í eyðimörkinni sunnan Atlasfjalla í suðausturhluta Marocco. Nákvæmri hlaupaleið og vegalengd er haldið leyndri fram á síðasta dag fyrir hlaup. Hlaupin eru 6 hlaup á 7 dögum, samtals um 245 km. Fyrstu þrjá dagana eru ca 30 - 40 km hlaup hvern dag. Á 4. degi er ofurmaraþon, dæmigert 75 - 80 km. Að loknum 5. degi, sem er hvíldardagur, er hlaupið maraþon (42.2 km) og loks endað á 7. degi með um 15 - 20 km hlaupi. Undirlag er fjölbreytt, allt frá lausum sandi til stórgrýtis. Hlaupið er yfir fjallgarða og í uppþornuðum árfarvegum, svo nokkuð sé nefnt. Keppendur bera matarbirgðir (þurrmat) og eldunar- og svefnbúnað frá fyrsta degi fyrir allt tímabilið, en fá afhent vatn með reglulegu millibili. Dvalist er í tjaldbúðum í eyðimörkinni milli hlaupa. Hiti um hádaginn getur farið upp undir 50oC, en niður fyrir 10oC að nóttu. Yfir 800 keppendur eru skráðir til þátttöku, frá um 39 þjóðlöndum. Hlaupið er skipulagt af Frökkum í samvinnu við innfædda. Fylgst er með hlaupinu og það myndað af sjónvarpsstöðinni Eurosport. Vefsíður hlaupsins eru:
http://www.darbaroud.com/index_uk.php og
http://www.saharamarathon.co.uk/
-en þar verður meðal annars unnt að fylgjast með hlaupinu þegar þar að kemur.