Í ellefta skiptið stendur hlaup.is fyrir vali á langhlaupara ársins. Veitt verða vegleg verðlaun fyrir sigurvegara og alla þá sem tilnefndir verða. Einnig verður dregið úr nöfnum þeirra sem kjósa og veitt vegleg útdráttarverðlaun.
Í ár verða valdir bestu langhlauparar ársins 2019 bæði í karla- og kvennaflokki. Þá er einkum verið að horfa til afreka í götu- og utanvegahlaupum. Afrek er afstætt, getur verið góður tími miðað við aldur, óvenjulegt verkefni, þrautseigja og kjarkur eða hvað eina sem hægt er að meta til viðurkenningar.
Lesendum hlaup.is er boðið að senda inn tilnefningar ásamt stuttri lýsingu á ástæðum tilnefningar fyrir miðnætti sunnudaginn 29. desember. Hver aðili má tilnefna eins marga hlaupara og hann vill. Úr hópi tilnefninga verða síðan valdir hlauparar í karla- og kvennaflokki sem kosið verður um.
Í kjölfarið mun hlaup.is birta helstu tilnefningarnar sem kosið verður um og verður þá opnað fyrir kosningu um langhlaupara ársins. Lesendur hafa þá tíma til að kjósa hér á hlaup.is en tilkynnt verður um sigurvegara í janúar með formlegri verðlaunaafhendingu.
Vinsamlegast sendið tilnefningar á netfangið torfi@hlaup.is fyrir miðnætti sunnudaginn 29. desember.
Hlaup.is þakkar stuðningsaðilum sem gáfu verðlaun, Íslandsbanka, SÍBS hlaupaverslun, Sportvörur og Hlaup.is.
Röð í vali á hlaupara ársins 2018:
Karlar | |
Röð | Nafn |
1 | Arnar Pétursson |
2 | Þorbergur Ingi Jónsson |
3 | Hlynur Andrésson |
4 | Jóhann Karlsson |
5 | Ingvar Hjartarson |
6 | Stefán Guðmundsson |
Konur | |
Röð | Nafn |
1 | Elísabet Margeirsdóttir |
2 | Rannveig Oddsdóttir |
3 | Elín Edda Sigurðardóttir |
4 | Anna Berglind Pálmadóttir |
5 | Andrea Kolbeinsdóttir |
6 | Anna Karen Jónsdóttir |