Síðasti séns að skrá sig á lægri verðunum í Jökulsárhlaupið

birt 01. júní 2014

Jökulsárhlaupið verður hlaupið þann 9. ágúst næstkomandi. Boðið er upp á þrjár vegalengdir: 32,7 km, 21,2 km og 13 km á stórkostlega fallegri hlaupaleið. Við viljum minna hlaupara sem ætla að fara í hlaupið að frá og með mánudeginum 2. júní hækka skráningargjöld í Jökulsárhlaupið. Þú hefur því til miðnættis á sunnudaginn til að skrá þig á lægri verðunum.