Skammhlaup FH fer fram á mánudagskvöld

birt 06. apríl 2017

Hlaupahópur FH stendur fyrir innanhúsmóti í skemmri vegalengdum mánudaginn 10. apríl. Öllum félögum í hlaupa- og skokkhópum er velkomið að taka þátt í mótinu sem ber að skemmtilega nafn, Skammhlaup FH. Keppt verður í 400m, 800m og 1500m karla og kvenna á 200m hringbraut í frjálsíþóttahúsinu í Kaplakrika. Upplagt tækifæri fyrir hlaupara til að mæla árangur hlaupaæfinganna í vetur á alvöru braut með tímatökugræjum.

Keppni hefst kl 19:30. Skráning á staðnum frá kl 18:30-19:10. Þáttökugjald kr 500.