Þátttakendur voru sannarlega heppnir með veður í fyrra.Skíðagöngufélagið Ullur stendur fyrir æfingabúðum í Bláfjöllum um helgina, 20.-22. Febrúar. Æfingabúðirnar eru ætlaðar lengra komnum, ekki síst þeim sem stefna á þátttöku í hinni víðfrægu Vasagöngu, Fossvatnsgöngunni eða öðrum Íslandsgöngum.Skíðagangan æ vinsælli meðal hlauparaSkíðaganga er alltaf að verða vinsælli meðal hlaupara enda góð viðbót við hina hefðbundnu vetrarrútínu hlauparans. Fjölbreytni í æfingum verður seint ofmetin og þeir eru ófáir sérfræðingarnir sem mæla með skíðagöngu fyrir hlaupara. Þá horfa margir hlaupara til Landvættanna og æfingabúðirnar ættu að freista þeirra mjög.
Í æfingabúðunum verður farið ítarlega í tækni, veikleika hvers og eins auk þess sem þátttakendur fá kennslu í smurningu. Skipt verður í 5-6 manna hópa enda stefnt að því að hver og einn fái sem mest úr úr æfingahelginni.
Verð fyrir æfingabúðirnar er 9.000 kr. en umsjónarmaður er Einar Ólafsson. Nánari upplýsingar um æfingabúðirnar m.a. dagskrá helgarinnar má finna á heimasíðu Ullar.