Skráningar í Reykjavíkurmaraþon 7% fleiri en í fyrra

birt 05. júlí 2014

Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka 2014 fer fram laugardaginn 23.ágúst í 31.sinn. Skráning í hlaupið er í fullum gangi og hafa nú þegar 6.295 skráð sig. Á sama tíma í fyrra voru 5.884 skráðir til þátttöku og því fjölgun í skráningum 7% milli ára.

Hægt er að velja á milli sex vegalengda og því ættu allir aldurshópar og getustig að finna eitthvað við sitt hæfi: 
Maraþon (42,2 km)
Hálfmaraþon (21,1 km)
Boðhlaup (2-4 saman í liði hlaupa samtals 42,2 km)
10 km hlaup
3 km skemmtiskokk
Latabæjarhlaup (fyrir 8 ára og yngri)

Konur um 60% skráðra hlaupara
Flestir eru skráðir í 10 km hlaupið eða 3.198 og næst flestir í hálft maraþon, 1.621 hlauparar. Töluvert fleiri konur hafa skráð sig til þátttöku en karlar en þær eru 60% af skráðum þátttakendum.

Fjölmargir erlendir hlauparar koma til landsins ár hvert til að taka þátt í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka. Í dag hafa 1.686 erlendir þátttakendur skráð sig til þátttöku og eru flestir þeirra frá Bandaríkjunum eða 350 manns. Skráðir Bretar eru 324 talsins og Þjóðverjar 174. Þá eru 143 Kanadamenn, 97 Norðmenn og 76 Svíar einnig skráðir.

Líkt og undanfarin ár fer fram áheitasöfnun í tengslum við hlaupið á vefnum hlaupastyrkur.is. Söfnunin í ár er nýhafin og hafa þegar safnast rúmar þrjár milljónir til góðra málefna. Í fyrra var slegið met í áheitasöfnuninni þegar 72,5 milljónir króna söfnuðust til góðgerðamála.

Allar nánari upplýsingar um Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka má finna á vefnum marathon.is en þar fer einnig fram skráning í hlaupið.