Skráningu á Evrópumót öldunga lokar á sunnudag

birt 14. júní 2017

Evrópumót öldunga í frjálsum íþróttum fer fram í Árósum 27. júlí  til 6. ágúst. Fjölmargar greinar eru í boði á mótinu en mikill metnaður er lagður í alla umgjörð og aðstöðu. Skráningu lýkur 18. júní og því fer hver að verða síðastur til að skrá sig til leiks. Skráning fer fram hérna.

Þátttakendur eru beðnir um að láta öldungaráð FRÍ vita hyggist þeir taka þátt svo sem best yfirsýn fáist yfir þátttöku íslenskra keppenda. Nægir að senda póst á oldungarad@fri.is og senda má fyrirspurnir í tengslum við mótið á sama póstfang.

Nánari upplýsingar má finna hér.

Dagskrá mótsins.