Hið árlega Miðnæturhlaup Suzuki fer fram í 24.sinn að kvöldi fimmtudagsins 23.júní. Þátttakendur geta valið milli þriggja vegalengda: hálfmaraþons (21,1 km), 10 km og 5 km.
Skráning í hlaupið er í fullum gangi á vefnum marathon.is og verður netskráning opin til miðnættis á miðvikudagskvöld. Þau sem ekki ná að forskrá sig á netinu geta skráð sig í Í Laugardalshöllinni frá kl.16:00 á hlaupdag og þar til 45 mínútum áður en hlaupið hefst. Á sama stað sækja forskráðir þátttakendur hlaupnúmerið sitt og önnur skráningargögn. Allir eru hvattir til að skrá sig á netinu því þátttökugjaldið er hærra á hlaupdag.
33% fleiri skráð sig heldur en á sama tíma í fyrra
Eins og staðan á skráningum er núna stefnir í metþátttöku í hlaupinu í ár því 33% fleiri hafa skráð sig í hlaupið heldur en á sama tíma í fyrra. Mest aukning er í 10 km hlaupið eða 40%. Þó að skráningu sé ekki lokið er ljóst að met verður slegið í fjölda þátttakenda í hálfu maraþoni. Þegar eru 569 búnir að skrá sig í þá vegalengd en þátttökumetið frá því í fyrra er 525.
Skráðir Íslendingar eru 25% fleiri en á sama tíma í fyrra en skráðir erlendir þátttakendur 42% fleiri. Erlendu þátttakendurnir eru nú 840 og hafa aldrei verið fleiri. Í fyrra tók einnig met fjöldi erlendra gesta þátt en þá voru þeir 694 talsins. Flestir erlendu þátttakendanna sem nú eru skráðir koma frá Bandaríkjunum eða 307. Þá eru skráðir Bretar 159, Kanadamenn 106 og Þjóðverjar 41. Erlendu þátttakendurnir eru af 48 mismunandi þjóðernum og því verður sannarlega alþjóðleg stemning í Laugardalnum á fimmtudagskvöld.
Hálfmaraþonhlauparar verða ræstir af stað fyrstir kl.21:20, því næst 5 km hlauparar kl.21:50 og að lokum 10 km hlauparar kl.22:00. Hlauparar verða ræstir af stað á Engjaveginum en koma í mark í trjágöngunum við gömlu þvottalaugarnar í Laugardalnum. Reikna má með að allir hlauparar verði komnir í mark um miðnætti og munu eflaust flestir láta þreytuna líða úr sér í Laugardalslauginni en þangað er öllum þátttakendum boðið að hlaupi loknu.
Engjavegur verður lokaður að hluta frá kl.18 en einnig verða lokanir á Gnoðavogi, Álfheimum, Skeiðarvogi. Sjá nánar hér á heimasíðu hlaupsins: http://marathon.is/kort-og-leidhir/truflun-a-umferdh
Allar hlaupaleiðir í Miðnæturhlaupi Suzuki eru mældar samkvæmt AIMS, sem eru alþjóðleg samtök götuhlaupa, og viðurkenndar af Frjálsíþróttasambandi Íslands. Hlaupið er hluti af Powerade Sumarhlaupunum 2016 og gildir til stiga á mótaröðinni.
Heimasíða hlaupsins: http://marathon.is/midnaeturhlaup
Dagskrá hlaupdags: http://marathon.is/hlaupid/dagskra-hlaupdags
Kort af hlaupaleiðum: http://marathon.is/kort-og-leidhir/kort
Upplýsingar um truflun á umferð: http://marathon.is/kort-og-leidhir/truflun-a-umferdh
Miðnæturhlaupið á Facebook: https://www.facebook.com/MidnaeturhlaupMidnightSunRun/