Stefnir í mjög góða þátttöku í Icelandair hlaupinu

birt 07. maí 2009

Rétt tæplega 300 hlauparar forskráðu sig í Icelandair hlaupið og reikna má með töluverðum fjölda hlaupara sem skrá sig á staðnum. Það stefnir því allt í góða þátttöku í hlaupinu.

Í fyrra hlupu 443 en gera má ráð fyrir að þeim fjölgi töluvert í ár miðað við forskráninguna og einnig stefnir í gott hlaupaveður. Hlaup.is verður á staðnum og tekur myndir eins og vanalega.