Stemmingsmyndband úr Hlauparöð FH og Atlantsolíu

birt 30. janúar 2016

Umfjöllunin um hlaupaíþróttina er alltaf að aukast og fleiri og fleiri miðlar sýna íslenska hlaupasamfélaginu athygli. Netmiðillinn SportTV var á staðnum þegar Hlauparöð  FH og Atlantsolíu hófst með glæsibrag á fimmtudag. Hér að neðan má sjá skemmtilegt myndband úr hlaupinu sem virkilega fanga hinn mikla og góða anda sem var á meðal hlaupara.

Frábær stemming var í hlaupinu og góð mæting, 217 hressir hlauparar mættir til að gera sitt besta. Úrslit úr hlaupinu eru komin á hlaup.is. Við minnum hlaupara á að Hlauparöð FH og Atlantsolíu heldur áfram í febrúar og mars.

Eins og áður hvetjum við hlaupaunnendur til að senda okkur skemmtilegt efni sem viðkemur hlaupum. Við á hlaup.is tökum við efni á heimir@hlaup.is eða torfi@hlaup.is.