Stemmingsmyndband úr Hlaupaseríu FH og Bose

birt 09. mars 2019

Hlaupasería FH og Bose heldur áfram að slá í gegn en 390 hlauparar tóku þátt í öðru hlaupi vetrarins sem fram fór fyrir viku. Hlaupaserían hefur vakið athygli fyrir frábæra umgjörð og hafa FH-ingar og samstarfsaðili þeirra Origo staðið frábærlega að hlaupunum í vetur. Þess má geta að Hlaupasería FH og Bose var kosið götuhlaup ársins 2018 af lesendum hlaup.is fyrir skömmu. Hlaupahaldarar settu skemmtilegt stemmingsmyndband úr öðru hlaupinu á netið og þar má glöggt merkja þann góða anda sem þar er ríkjandi. Sjón er sögu ríkari.

Við minnum alla hlaupara á þriðja og síðasta hlaupið í seríunni sem fram fer 21. mars næstkomandi, skráning er hafin á hlaup.is. Úrslit í öðru hlaupinu er að finna á hlaup.is.