Stjörnuhópurinn gerir upp hlaupaárið í myndbandi

birt 20. nóvember 2017

Félagar í hinum mjög svo öfluga Hlaupahópi Stjörnunnar í Garðabæ hafa sett saman uppgjörsmyndband fyrir hlaupaárið 2017. Í myndbandinu má sjá myndir af félögum í hópnum sem fóru víða á árinu sem er að líða. Fyrir utan að eiga fulltrúa í nánast hverju einasta almenningshlaupi sem fram fór á Íslandi á árinu átti Stjörnumenn fulltrúa í hlaupum út um allan heim s.s. Dubai, Barcelona, Þriggja landa maraþoninu, Montreal, New York, Chicago svo eitthvað sé nefnt.

Á myndunum má greinilega sjá að Stjörnuhópurinn er öflugur og samheldinn hópur sem vinnur frábært starf í þágu íslenska hlaupa. Vert er að minnast á hið frábæra Stjörnuhlaup sem á stuttum tíma hefur unnið sér sess sem eitt af stærri og flottari hlaupum í íslensku hlaupasenunni.

Við hvetjum hlaupahópa sem sett hafa saman sambærileg myndbönd til að senda okkur á hlaup.is og leyfa þar með íslenska hlaupasamfélaginu að njóta með. Sendið okkur póst á heimir@hlaup.is.