Undirbúningur fyrir Stjörnuhlaupið 2016 er í fullum gangi. Af því tilefni hafa Stjörnumenn búið til upphitunarmyndband fyrir hlaupið í ár. Þá hafa Stjörnumenn lofað fleiri myndböndum á næstu dögum og vikum þar sem frekar verður hitað upp fyrir herlegheitin. Rétt er að minna á að Stjörnuhlaupið fer fram 21. maí.
Eins og áður hefur komið fram verður Stjörnuhlaupið einnig Meistaramót Íslands í 10 km hlaupi en einnig er boðið upp á 5 km hlaup.
Frekari upplýsingar um hlaupið má nálgast á hlaup.is.
Skráning í Stjörnuhlaupið fer fram á hlaup.is.