Strandarhlaupið í Vogunum um miðjan ágúst

birt 06. ágúst 2015

Hlaupaleiðin í 10 km hlaupi Strandarhlaupsins.Strandarhlaupið verður haldið í Vogunum þann 15. ágúst næstkomandi. Hlaupið er arftaki gamla Línuhlaups Þróttar en er nú haldið í nýjum búningi með breyttum hlaupaleiðum og flögutímatöku.Þróttarar í Vogunum standa fyrir hlaupinu og eru sem fyrr staðráðnir í að búa til góða stemmingu og fína umgjörð. Hlauparar á Reykjanestánni eru hvattir til að láta ljós sitt skína og þá er ekki langt að fara fyrir fótfráa íbúa höfuðborgarsvæðisins í Vogana. Athygli er vakin á áhugaverðum hlaupaleiðum um nágrenni Vogana, ekki síst í 10 km hlaupinu. Skráning fer fram á hlaup.is Nánari upplýsingar um Strandarhlaupið er að finna á hlaup.is