Styttist í Stjörnuhlaupið - kynningarmyndband komið í loftið

birt 04. maí 2015

Stjörnuhlaup VHE (Íslandsmeistaramót í 10 km hlaupi) fer fram í Garðabæ 14. maí næstkomandi. Íslenskir hlaupahaldarar eru heldur betur að setja ný viðmið í kynningu og umgjörð á almenningshlaupum eins og lesendur hlaup.is hafa orðið varir við að undanförnu. Enda hafa íslenskir hlauparar aldrei verið fleiri né betri.

Stjörnumenn (Hlaupahópur Stjörnunnar) ætla ekki að vera neinir eftirbátar annarra hlaupahaldara en þeir eru búnir að setja í loftið tignarlegt kynningarmyndband, tekið upp með aðstoð dróna.

Í myndbandinu má sjá hlaupaleiðina í 10 km hlaupinu úr lofti sem dregur langt í frá úr fegurð leiðarinnar. Þá hafa Stjörnumenn lofað að dróninn verði einnig á lofti þegar hlaupið fer fram og verður afraksturinn settur á netið í kjölfarið.

Hlaup.is hvetur hlaupara á öllum stigum til að taka þátt og koma þessu nýja hlaupi á kortið í hinu sívaxandi íslenska hlaupasamfélagi. Garðbæingar bjóða upp á 5 km og 10 km hlaup en hlaupið er frá Garðatorgi. Sérstök athygli er vakin á því að boðið er upp á sveitakeppni sem kjörinn vettvangur fyrir hlaupahópa, fyrirtæki eða aðra hópa til að gera sér glaðan dag.

Skráning í Stjörnuhlaup VHE fer fram á hlaup.is.

Stjörnuhlaupið á hlaup.is

Kynningarmyndband Stjörnumanna.

Fésbókarsíða Stjörnuhlaupsins.