Tæknileg vandamál koma í veg fyrir birtingu flögutíma í Miðnæturhlaupinu

birt 25. júní 2010

Vegna tæknilegra vandamála gengur illa að ná upphafstímum þ.e. flögutímum. Búið er að leita ráða hjá erlendum sérfræðingum og er það von okkar að það náist að leysa vandamálið og ná þessum tímum. Það kemur þó ekki í ljós fyrr en í fyrsta lagi eftir helgi.

Við munum birta „chiptime" eða flögutíma um leið og það tekst að ná upplýsingunum úr kerfinu.

f.h. mótshaldara

Guðlaug Baldvinsdóttir