Taktu þátt í að velja götuhlaup ársins og utanvegahlaup ársins 2017 á hlaup.is. Val á hlaupum ársins byggir á einkunnagjöfum þátttakenda og er mikilvægur þáttur í að búa til enn betri umgjörð um almenningshlaup á Íslandi. Við hvetjum alla hlaupara til að gefa þeim hlaupum sem þeir tóku þátt í á síðasta ári einkunn.
Hægt er að gefa einkunnir til miðnættis annað kvöld, fimmtudag.
Þá rennur frestur til að kjósa langhlaupara ársins einnig út annað kvöld.
Tilkynnt verður um niðurstöðurnar á sérstöku hófi hlaup.is á sunnudaginn kemur.