Þorbergur Ingi Jónsson, UFA kom rétt í þessu fyrstur í mark í Laugavegshlaupinu á nýju og glæsilegu brautarmeti. Þorbergur hljóp kílómetrana 55 á 4:07:47 eða tólf mínútum skemur en Björn Margeirsson fyrri methafi gerði árið 2012. Örvar Steingrímsson hafnaði í öðru sæti á 4:46:14 og í þriðja sæti var Elliot Drake á 5:00:01
Elísabet Margeirsdóttir kom fyrst kvenna í mark á 5:34:05 og í öðru sæti var Guðbjörg Björnsdóttir á 5:45:14.
345 hlauparar voru skráðir til leiks í Laugavegshlaupið að þessu sinni. Hlaupinu verða gerð nánari skil á hlaup.is innan skamms.