Langhlaupari ársins
Þorbergur Ingi Jónsson og Elísabet Margeirsdóttir eru langhlauparar ársins 2015 að mati hlaupara og lesenda hlaup.is. Verðlaunaafhendingin fór fram við hátíðlega athöfn í dag, sunnudaginn 7. febrúar, en verðlaun voru veitt fyrir fyrstu þrjú sætin í karla- og kvennaflokki. Í öðru sæti urðu Kári Steinn Karlsson og Helga Margrét Þorsteinsdóttir. Í þriðja sæti urðu þau Stefán Guðmundsson og Sigurbjörg Eðvarðsdóttir.
Langhlauparar ársins 2015 að matí íslenska hlaupasamfélagsins, Elísabet Margeirsdóttir og Þorbergur Ingi Jónsson.
Fjöldi tilnefninga barst frá lesendum hlaup.is en nöfn 28 hlaupara bárust að þessu sinni. Kosið var á milli sex hlaupara í karla flokki annarsvegar og kvennaflokki hinsvegar. Í kosningunni sjálfri sem fram fór á hlaup.is greiddu 750 lesendur atkvæði. Upplýsingar um afrek tilnefndra hlaupara.
1-3. sæti. Frá vinstri: Sigurbjörg, bróðir Helgu Margrétar, Elísabet, Þorbergur, Kári Steinn og faðir Stefáns Guðmundssonar.
Hlaup ársins
Val á hlaupum ársins var einnig kunngjört á verðlaunaafhendingunni. Fossvogshlaupið hlaut titilinn götuhlaup ársins og Mt. Esja Ultra í flokki utanvegahlaupa. Rétt eins og með valið á langhlaupurum ársins þá eru það lesendur hlaup.is sem velja hlaup ársins með ítarlegum einkunnagjöfum.
Í öðru sæti sem götuhlaup ársins 2015 var Vestmannaeyjahlaupið og í þriðja sæti The Color Run. Í öðru sæti í flokki utanvegahlaupa var Hvítasunnuhlaup Hauka og í þriðja sæti Laugavegshlaupið.
Fulltrúar hlaupa ársins 2015. Tonie Gertin Sörensen (tv.) fyrir hönd Fossvogshlaupsins (götuhlaup). Elísabet Margeirsdóttir fyrir hönd Mt. Esja Ultra (utanvegahlaup).
Útdráttarverðlaun
Allir lesendur hlaup.is sem tóku þátt í að velja hlaupara ársins eða gáfu hlaupum einkunn fóru sjálfkrafa í pott þaðan sem nöfn Aldísar Hilmarsdóttur og Ingólfs Björns Sigurðssonar voru dregin og fá þau að launum Brooks hlaupaskó. Að auki voru fjöldi annarra útdráttarverðlauna dregin út. Þegar hefur verið haft samband við verðlaunahafa.
Sjá einnig: Upplýsingar um afrek tilnefndra hlaupara
Fleiri myndir úr verðlaunaafhendingunni má sjá hér að neðan.
1-3. sæti. Frá vinstri: Sigurbjörg, bróðir Helgu Margrétar, Elísabet, Þorbergur, Kári Steinn og faðir Stefáns Guðmundssonar.
Hlauparar í 4-6 sæti sem áttu heimagengt. Frá vinstri: Systir Önnu Berglindar Pálmadóttir, Birna Varðardóttir, Sigurjón Sigurbjörnsson og Ívar Trausti Jósafatsson
Fulltrúar Utanvegahlaupsa ársins 2015: Svava Oddný Ásgeirsdóttir f.h. Laugavegshlaupsins, Elísabet Margeirsdóttir f.h. Mt. Esja Ultra og Pétur Svavarsson f.h. Hvítasunnuhlaups Hauka.
Fulltrúar Götuhlaupa ársins 2015. Frá vinstri: Davíð Lúther Sigurðarson f.h. The Color Run, Kári Steinn Karlsson f.h. Vestmannaeyjahlaupsins og Tonie Sörensen f.h. Fossvogshlaupsins.
Þeir sem unnu útdráttarverðlaun og gátu mætt til að taka við þeim. Ingólfur Björn Sigurðsson vann Brooks hlaupaskó, Linda Jasonardóttir vann Squeezy kolvetnaduft og gel og Bryndís María Davíðsdóttir vann sokka og húfu frá Dansport.