Þorbergur Ingi sjötti í gríðarlega sterku utanvegahlaupi

birt 02. september 2017

Þorbergur á fullri ferð í Ölpunum.Þorbergur Ingi Jónsson hafnaði í sjötta sæti í CCC (101 km) utanvegahlaupinu í gær. Um er að ræða gríðarlega sterkt og krefjandi hlaup þar sem margir af betri utanvegahlaupurum heims koma saman. 2150 hlauparar hófu leik í hlaupinu.Samkvæmt Fésbókarsíðu Þorbergs var hann einkar ánægður með hlaupið. CCC hlaupið er eins og áður segir 101 km að lengd með 6100m hækkun. Eins og gefur að skilja geta hlauparar átt von á öllum veðrum í slíku hlaupi. Samkvæmt Þorbergi voru aðstæður frekar erfiðar og hitastigið á leiðinni mjög breytilegt. Það tók Þorberg 11 klukkustundir og 14 mínútur að klára hlaupiðBesti árangurinn til þessaMeð þessum árangri er Þorbergur enn frekar að stimpla sig inn sem utanvegahlaupari á heimsmælikvarða. Undanfarin ár hefur Þorbergur náð forvitnilegum árangri í alþjóðlegum utanvegahlaupum en þetta er hans besti árangur til þessa. Það verður því áhugavert að fylgjast með þessum frábæra íþróttamanni á næstunni því hann virðist enn vera í bullandi framför.Davíð Vikarsson var einnig á meðal keppenda í hlaupinu. Hann hafnaði í 811. sæti á 21 klukkustund og 41 mínútu.

Hlaupið er um ítölsku, frönsku og svissnesku Alpana í CCC hlaupinu sem er systurhlaup UTMB utanvegahlaupsins. UTMB hlaupið er 171 km að lengd með 10.000m hækkun. Hlaupið hófst í gær kl. 16.30 að íslenskum tíma. Á meðal keppenda eru að minnsta kosti fjórir íslenskir keppendur. Hlaup.is stefnir á að færa lesendum tíðindi af þeim um helgina.

Mynd af Fésbókarsíðu Þorbergs Inga.