Þórdís Jóna Hrafnkelsdóttir er tilnefnd sem langhlaupari ársins 2017 á hlaup.is. Í níunda skiptið stendur hlaup.is fyrir vali á langhlaupara ársins, bæði í karla- og kvennaflokki. Þá er einkum verið að horfa til afreka í götu- og utanvegahlaupum eða annarri keppni í langhlaupum. Afrek er afstætt, getur verið góður tími miðað við aldur, óvenjulegt verkefni, þrautseigja og kjarkur eða hvaðeina sem hægt er að meta til viðurkenningar.
Þórdís Jóna Hrafnkelsdóttir (52 ára) hefur undanfarin ár tekið þátt í fjölmörgum lengri hlaupum og staðið sig vel. Besti árangur hennar á síðasta ári var án efa í Heimsmeistaramótinu í 50 km utanvegahlaupi sem fram fór í Toscana 10. júní. Hún varð í 78. sæti á 6:55:11 klst og einungis um 30 mínútum á eftir Elísabetu Margeirdóttur. Það að Þórdís Jóna hefur lagt fyrir sig langhlaup hin síðari ár er nokkuð merkilegt þar sem hún var einn besti hástökkvari landsins á yngri árum, stökk hæst 1,74 m árið 1983.
Hægt verður að kjósa til kl. 24 fimmtudaginn 18. janúar 2018. Verðlaunaafhending verður sunnudaginn 21. janúar og tilkynnt verður um niðurstöðu kosningar í kjölfarið á því hér á hlaup.is.
Allir sem kjósa fara í pott og geta unnið hlaupaskó.
Smellið hér til að kjósa langhlaupara ársins (athugið að gefa besta hlaupara 6 stig og svo koll af kolli)
Munið að taka þátt í að velja götuhlaup ársins og utanvegahlaup ársins með því að smella hér og gefa einkunn.
Sjá upplýsingar um alla hlaupara sem koma til greina í valinu.