Þátttakendur í JökulsárhlaupinuFjölþrautarfélagið Landvættir hefur ákveðið að bæta Þorvaldsdalsskokkinu við vegna mikillar aðsóknar í félagið og þær áskoranir sem það stendur fyrir. Fjöldatakmarkanir eru á flesta viðburði tengda Landvættum og oft komast færri að en vilja.Hlaupahluti Landvætta hefur hingað til verið Jökulsárhlaupið en þar er náttúran mjög viðkvæm og af þeim sökum er hámarksfjöldi 250 manns í öllum vegalengdum. Mun fleiri hafa sýnt áhuga á að taka þátt í hlaupinu og hefur því verið ákveðið að taka inn annað sambærilegt hlaup í Landvættina.Vegalengdin í Þorvaldsdalsskokkinu er rúmir 25 km eða nokkuð styttri en í Jökulsárshlaupinu en hlaupaleiðin er erfiðari yfirferðar og erfiðleikagráðan því mjög svipuð. Allar frekari upplýsingar um Þorvaldsdalsskokkið má finna á hlaup.is.
Í félagatali Landvættanna verða þeir sem hlaupa Þorvaldsdalsskokkið í stað Jökulsárshlaupsins merktir með stjörnu eftir nafni þar til breytingar hafa verið gerðar á heimasíðu félagsins.
Stjórn Landvætta gerir sér grein fyrir að ákvörðunin gæti orðið umdeild en hún er tekin til þess að fleiri eigi möguleika á þá miklu áskorun sem Landvættirnir eru án þess þó að slaka á kröfum.
Viðtal hlaup.is við formann Fjölþrautafélagsins Landvætta, Ingvar Þóroddsson.