Stefán Gíslason fjallvegahlaupari og fleira gott fólk ætla að hlaupa æfingahlaup þann 19. júní.
Þetta verður frekar hugsað sem skemmtihlaup en keppnishlaup en þó gætu einhverjir viljað nota það sem æfingu fyrir Laugavegshlaup.
Hlaupið er kallað Þrístrending og hægt er sjá nánari upplýsingar um hlaupið með nánari útskýringum á bloggi Stefáns.
Á Facebook síðu með upplýsingum um hlaupið er hægt að skrá sig til þátttöku, spyrja spurninga o.s.frv.