Ferðaþjónusta bænda hefur skipulagt ferð til Tíbet í júlí á næsta ári þar sem helsti tilgangur ferðarinnar er að þátttaka í Tíbetmaraþoninu.
Búið er að sýna ferðinni mikinn áhuga og nú þegar eru töluvert margir sem að vilja mæta á kynningarfund sem haldinn verður 5. september hjá Ferðaþjónustu bænda, Síðumúla 2, annarri hæð kl. 20:00.
Á kynningarfundinum mun sérfræðingur frá Danmörku kynna maraþonið sérstaklega. Nánari upplýsingar um maraþonið og fyrirkomulag þess er á eftirfarandi slóð:
http://www.baendaferdir.is/news.asp?id=980&news_ID=486&type=one&webid=33