Tilkynning frá Frjálsíþróttadeild ÍR.
Kæri hlaupari.
Frjálsíþróttadeild ÍR hefur frá árinu 1976 staðið fyrir almenningshlaupi á Gamlársdag sem hefur fest sig í sessi sem vinsæll menningarviðburður. Fjöldi þátttakenda hefur farið stöðugt vaxandi ár frá ári og verið á annað þúsund síðustu ár. Frá árinu 1998 hefur verið hlaupið um miðbæinn og út á Seltjarnarnes og til baka um Ægissíðu og Suðurgötu innan um bílaumferð. Þar sem hlaupið er yfir Melatorg við Þjóðminjasafnið hefur ríkt nær öngþveiti vegna mikillar umferðar einkabíla og strætisvagna á þeim tíma sem hlaupið fer fram.
Aðstandendur hlaupsins, borgaryfirvöld, lögregla og Strætó bs hafa haft vaxandi áhyggjur af þessari röskun og hlaupararnir hafa verið í hættu vegna þessa þótt sem betur fer hafi ekki orðið slys. Nú hefur hins vegar verið ákveðið í samráði við borgaryfirvöld, lögreglu, Strætó, Vegagerðina og Faxaflóahafnir að færa hlaupið á öruggara svæði þar sem slysahætta og truflun er lágmörkuð.
Hlaupið verður frá tónlistarhúsinu Hörpu og hlaupinu lýkur á sama stað. Í Hörpu er fyrirmyndar aðstaða fyrir hlaupara fyrir og eftir hlaupið. Þar verður hægt að komast á salerni og geyma fatnað sem menn vilja skilja eftir. Í kjallaranum eru næg bílastæði og áhorfendur geta fylgst með bæði innan dyra og utan. Hlaupið verður á nyrðri akbraut Sæbrautar að beygju niður Sægarða á Vatnagarða, síðan niður Sundagarða á Klettagarða og þaðan Sæbraut til baka að Hörpu (sjá kort á hlaup.is ).
Til þess að tryggja öryggi hlauparanna verður lokað fyrir umferð á nyrðri helmingi Sæbrautar milli Hörpu og Sægarða meðan hlaupið fer fram. Í Vatnagörðum verður drykkjarstöð.
Hlaupið hefst kl 12. Upplýsingar um skráningu á netinu er að finna á hlaup.is og á vefsíðu ÍR, ir.is .
Í ár verður í fyrsta sinn notast við flögumælingar á tíma þátttakenda.
Frjálsíþróttadeild ÍR hvetur alla sem vettlingi geta valdið til að taka þátt í þessum skemmtilega viðburði sem er jafnframt fjáröflun fyrir það mikilvæga starf sem unnið er á vegum deildarinnar. Deildin er afar þakklát þeim sem taka þátt í hlaupinu og öðrum viðburðum á hennar vegum.
Fátt er jafn gefandi og að ljúka þjálfun ársins með þátttöku í Gamlárshlaupinu eins og sést á brosum allra sem koma í mark.
Við hvetjum þig til að koma og taka þátt í Gamlárshlaupinu !
Frjálsíþróttadeild ÍR.