Skráning í boðhlaupið verður í World Class inni í Laugum, föstudaginn 4. mars, frá klukkan 17-19. Skráning kostar 1.700 kr. á sveit og greiðist við skráningu.
Nóg er að senda einn mann í skráningu fyrir sveitina. Ef að hann á flögu þá á hann að koma með hana annars fær hann flöguna við skráninguna.
Sá sem kemur í skráninguna fær allar upplýsingar um hlaupið sjálft.
Ekki þarf að skrá nöfn eða fjölda þátttakenda í sveit á föstudeginum, eingöngu sveitarnafnið.
Öll verðlaun eru úrdráttarverðlaun, þ.e. allir hafa sama möguleika til að vinna.
Veitingar í boði þegar líða fer á hlaupið.
Athugið! Til að allt gangi upp og að allir skemmti sér vel þá verða allir að leggjast á eitt um að láta þetta ganga upp.